„Nauðsynlegt að hefjast handa strax“
Á síðasta fundi atvinnu-, menningar- og kynningarnefndar Sveitarfélagsins Skagafjarðar, þann 23. febrúar, voru lögð fram til kynningar drög að skýrslu um greiningu innviða í Skagafirði, sem nýtast eiga við kynningu á svæðinu og tækifærum til að fjárfesta á svæðinu. Sigurjón Þórðarson, fulltrúi K-lista lagði fram svohljóðandi bókun:
„Drögin eru víðtæk samantekt á hinum ýmsum þáttum sem geta nýst þegar fram líða stundir en mikilvægt er að hefjast handa strax við smærri og afmarkaðri verkefni. Eitt gæti verið að óska eftir þátttöku athafnamanna í útbænum í starfshóp sem hefði það að markmiði að efla verslunar- og veitingarekstur í gamla bænum. Annað gæti verið að óska eftir þátttöku forystumanna í nýstofnuðu smábátafélagi Drangey í að móta tillögur um hvernig efla má útgerð og tengdan rekstur á Sauðárkróki og Hofsósi.“