Nemendur hlaupa til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar
Á morgun, þriðjudaginn 29. október munu nemendur 7. og 8. bekkjar í Varmahlíðarskóla hlaupa 65 km til styrktar Krabbameinsfélagi Skagafjarðar. Síðustu vikur hafa þau safnað áheitum og styrkjum og hefur fólk tekið þeim afar vel, en mörgum er málið skylt.
Klukkan 9:30 leggja nemendur af stað frá Varmahlíð, verða á Sauðárkróki um 12 leytið, hlaupa eftir Sauðárkróksbraut austur að Blönduhlíðarafleggjara, þaðan suðureftir Blönduhlíðinni og svo eftir reiðstígum meðfram þjóðveginum aftur í skólann. Áætlað er að síðustu hlaupararnir verði komnir að skólanum um 18.
Allir eru velkomnir að hlaupa með þeim hvar sem er á leiðinni og að sjálfsögðu taka þau enn við styrkjum til söfnunarinnar.