Níu greinast með krabbamein á einu ári
Í sjónvarpsfréttum RUV í gærkvöld kom fram að á aðeins einu ári hafa níu íbúar í Varmahlíð greinst með krabbamein. Tilviljun segja fræðingar. Stefán Gíslason er einn þessara níu en hann var í viðtali í sjónvarpsfréttum.
Í fréttinni kom fram að um 130 manns búi á þessu svæði og segir Stefán þetta því vera ansi háa prósentu. „Furðulegur tilviljunartoppur,“ segir sérfræðingur sem Ruv leitaði til.
Stefán telur að vegna smæðar samfélagsins hafi margir farið og látið skoða sig eftir að tilfellum fór að fjölga en hann segir jafnframt í viðtalinu að því fyrr sem krabbamein greinist því meiri séu batahorfurnar og því sé það af hinu góða að láta fylgjast vel með heilsufari sínu.
Fréttina á ruv má finna hér