Níu milljóna Lottóvinningur í Fljótin

Það var stálheppinn viðskiptavinur hjá versluninni Ketilás í Fljótum sem smellhitti á allar tölur í Lottói vikunnar og hlýtur óskiptan 1. vinning sem var upp á rúmlega 9,1 milljón. Samkvæmt því sem fram kemur á Lottó.is skiptu fimm með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rétt rúmlega 80 þúsund í vinning.

Þrír þeirra eru í áskrift, einn miði var keyptur á heimasíðunni lotto.is og einn í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði. „Það voru einnig fimm vinningshafar með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund kall í vasann, fjórir miðanna eru í áskrift og einn var keyptur í Lukku Láka í Mosfellsbæ,“ segir á Lottó.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir