Nóg að gera á Eldi í Húnaþingi í dag

Bæjarhátíðin Eldur í Húnaþingi í Húnaþingi vestra var sett í gær. Dagskrá hátíðarinnar er glæsileg og allir ættu að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi. Í dag er dagskrá frá kl. 10.00 til 23.00, og það er allt frá myndasögugerð og upplestri til fjallaskokks. 

Kl. 10.00 verður námskeið fyrir börn og unglinga á aldrinum 6-16 ára sem heitir Ritsmiðja og myndasögugerð. Skráningar á frida@arkibullan.is
Kl. 11.00 verður boðið upp á upplestur í Selasetrinu á barnasögunni um Selinn Snorra. Ókeypis inn og allir hjartanlega velkomnir.
Kl. 12.00 er Vinyasa flæði með Kristrúnu Kristjáns. Skráningar á kristrunkris91@gmail.com
Ýmislegt verður brallað í félagsheimilinu á Hvammstanga kl. 13.00, en það verður námskeið fyrir börn um unglinga á aldrinum 6-16 ára um Mexíkó. Þar verður eldað, föndrað og loks slegið upp mexíkóskri veislu. Skáningar á frida@arkibullan.is
Kl. 15.00 fer fram Eldsmótið í borðtennis í Íþróttamiðstöðinni á Hvammstanga. Skráning fer fram á staðnum.
Kl. 16.00 fer síðan fram Eldsmótið í skotbolta á sama stað og skráning í það fer einnig fram á staðnum.
Fjallaskokkið fer líka af stað kl. 16.00 á Vatnsnesfjalli. Farið verður frá Grund í Vesturhópi yfir Vatnsnesfjallið og endað ofan í Kirkjuhvammi á Hvammstanga. Þetta er um 12 km leið og hækkun á milli 400-500 m. Upplýsingar um skokkið má finna hér.
Hverfakeppnin á sér fastan sess á hátíðinni, en hún verður kl. 19.00 á Bangsatúninu. Þar gengur dómnefnd um og íbúar hverfanna bera fram matarkræsingar fagurlega skreyttar lit viðeigandi hverfis.
Kl. 21.00 byrjar ball í félagsheimilinu Hvammstanga þar sem DJ Heiðar skemmtir unglingum á aldrinum 11 til 17 ára. Ókeypis aðgangur.
Á sama tíma í Sjávarborg á Hvammstanga verður sannkölluð tónlistarveisla á Melló Músíka, en þar koma heimamenn fram og flytja lög. Aldurstakmark er 18 ár og aðgangur er ókeypis.
Að loknu Melló Músíka, kl. 23.00, stígur hljómsveitin Melstöðin á stokk og skemmtir fólki til kl. 01.00.

Það er því nóg að gera í dag á Eldi í Húnaþingi. Fyrirmyndar dagskrá og eins og áður kom fram ættu allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi.

Fleiri fréttir