Nokkrir miðar enn til á jólahlaðborð Rótarý

Það stefnir í fjölmennt jólahlaðborð hjá Rótarýklúbbi Sauðárkróks nk. laugardag þar sem um 600 miðum hafur þegar verið útdeilt. Að sögn Ómars Braga Stefánssonar Rótarýfélaga hefur gengið vel að koma miðunum út og enn er hægt að nálgast miða í Sauðárkróksbakaríi.

Eins og áður hefur komið fram ákvað Rótarýklúbburinn að efna til ókeypis jólahlaðborðs í íþróttahúsinu á Sauðárkróki 30. nóvember nk. þar sem alls verður boðið sjöhundruð manns til sætis. Viðburðurinn er ætlaður sem samfélags- og styrktarverkefni en mörg fyrirtæki koma að verkefninu og munu hlaðborðin svigna undan girnilegum veitingum. Þá mun tónlistarfólk búa til fallega stemningu til að gera stundina eftirminnilega.

Fleiri fréttir