Nökkvi Már Víðisson Byrðuhlaupsmeistari 2013 á nýju meti.
Byrðuhlaup 2013 fór fram mánudaginn 17.júní síðastliðinn. Hlaupið fór fram í hreint út sagt frábæru veðri og var árangurinn eftir því en alls tóku 10 þátt í hlaupinu að þessu sinni. Hlaupið, sem var nú haldið í fjórða sinn, var með breyttu sniði þetta árið. Ákveðið var að halda hlaupið 17. júní í staðinn fyrir einhvern dag í ágúst til að bjóða upp á fjölbreyttari dagskrá á þjóðhátíðardaginn.
Boðið var upp á 3 hlaupaleiðir að þessu sinni: Leið 1. Sem var í Gvendarskál (2,1 km. Og 400m hækkun.)En alls tóku 7 þátt í þeirri leið. Leið 2. Sem var svokallaður Elliðahringur (ca 5,5 km.) en enginn mætti á þá leið. Leið 3. Sem var „barnavagnsvæna leiðin“ (3,6 km.) En alls tóku 3 þátt í þeirri leið. Ræst var frá hliðinu á tjaldsvæðavegi.
Eins og áður segir þá sigraði Nökkvi Már Víðisson (16 ára) Byrðuhlaupið á nýju meti en það var 28 min og 59 sek. Gamla metið átti Guðmundur Þór Elíasson en það var 29 min og 30 sek. Næst á eftir Nökkva kom stórfrændi hans, Sindri Snær Pálsson (15 ára) á tímanum 29 min og 53 sek. Í þriðja sæti var síðan Guðmundur Elí Jóhannsson (14 ára) á tímanum 38 min og 11 sek. En Guðmundur Elí er eini keppandinn í sögu Byrðuhlaupsins sem hefur keppt í öll fjögur skiptin. Sigurvegarinn í kvennaflokki var Íris Lilja Jóhannsdóttir (11 ára) á tímanum 39 min og 50 sek. Á eftir Írisi Lilju komu síðan Sigurlaug Rún Brynleifsdóttir, Þorbjörn Gauti Guðmundsson (360 daga gamall) og Sigríður Júlía Brynleifsdóttir öll á tímanum 1.klst. 9 mín og 30 sek.
Þau sem tóku þátt í leið 3 voru: Louisa Lind Jóhannesdóttir (6 ára), Heiða B. Jóhannsdóttir og Ingólfur Snær Árnason (40 daga gamall)
Eftir hlaupið, eða um klukkan 14:00 var síðan skrúðganga niður að Grunnskólanum þar sem fór fram verðlaunaafhending, en allir keppendur fengu viðurkenningarskjal um með tímanum sínum og einnig voru veitt verðlaun fyrir fyrsta sæti í kvennaflokki, fyrsta sæti í karlaflokki sem og Byrðuhlaupsmeistarinn 2013 fékk farandbikar í sína vörslu í eitt ár. Eftir verðlaunaafhendinguna voru síðanleikir og grillaðar voru dýrindis pylsur/pulsur. Ungmennafélagið þakkar öllum sem kom og áttu góða stund saman á þjóðhátíðardaginn.
/ÁG