Norðanátt.is fimm ára í dag

Í dag er vefurinn Norðanátt.is sem er helsta frétta- og upplýsingaveita Húnaþings vestra fimm ára. Það voru þær Kristín xx og Aldís Olga Jóhannesdóttir sem fengu hugmyndina að vefnum árið 2007 og komu honum í loftið árið eftir, og var þá önnur þeirra í Danmörku en hin á Bifröst. Í dag sér Aldís Olga um vefinn og nýtur til þess dyggrar aðstoðar fjölskyldmeðlima, en sjálf segir hún svo frá á vefnum í dag:

Kristín Guðmundsdóttir var með þá flugu í hausnum að setja á fót vefmiðil fyrir Húnaþing vestra og fékk mig til liðs við sig. Okkur fannst það greinilega ekkert tiltökumál að Kristín var staðsett í Danmörku og ég á Bifröst, s.s. báðar utan þjónustusvæðis.

Svo kom árið 2008. Munið þið hvað gerðist 2008? Við minnumst þess árs auðvitað fyrir þær sakir að Norðanátt.is fór í loftið. Það var nú ekki það eina sem gerðist á því herrans ári. Allt í kringum Húnaþing vestra virtist hver ísbjörninn á fætur öðrum nema land, annað bindi af Sögu Hvammstanga kom út, afleggjarinn að Laugarbakka færðist til og Lexía kom aftur saman á Húnavöku. Þvílíkt undraár!

Á opnunardeginum vorum við agalega lukkulegar með þetta verk okkar.. í sitthvoru landinu. Markmiðið með þessu var að koma þessu svæði enn betur á kortið og vera upplýsandi og jafnvel skemmtandi fyrir íbúa svæðisins og aðra áhugasama. Sumt hefur tekist og sumt ekki. Það er eins og stundum vill verða. Kveðjuhornið er eitt af því sem gekk kannski ekki alveg, sem og smáauglýsingarnar. Í dag leggjum við mesta áherslu á að vera með hinar ýmsu fréttir, tilkynningar og myndir frá mannlífinu. Það er eitt og annað sem er á döfinni að laga til og gerist það með tíð og tíma.

Umsjón vefmiðilsins hefur líka breyst á þessum fimm árum. Á árinu 2010 snéri Kristín Guðmundsdóttir til annarra verka og ég flækti ýmsa fjölskyldumeðlimi með í þetta ævintýri. Í dag er ritstjórnin í mínum höndum og hef ég fengið stórkostlega aðstoð í fréttaöflun hjá systur minni, Huldu Signý Jóhannesdóttur, og foreldrum, þeim Jóhannesi Ragnari Jóhannessyni og Kristbjörgu Sigurnýasdóttur. Það er ekki eina aðstoðin, því það er svolítið flókið mál að vera með nefið ofaní öllu sem mögulega gæti eða hefur gerst. Sérleg aðstoð berst frá lesendum vefsins sem senda inn fréttaefni og tilkynningar. Það er einmitt þannig sem við viljum að þetta virki, að fólk hjálpist að við að upplýsa um allt það gleðilega er við kemur Húnaþingi vestra."

Feykir óskar Norðanátt.is til hamingju með daginn og þakkar gott samstarf.

Fleiri fréttir