Norðurland vestra ekki til í nýrri auglýsingarherferð Velferðarráðuneytis
Um helgina fór af stað auglýsingaherferð Vinnumálastofnunar og Velferðarráðuneytis þar sem auglýst eru til umsóknar sérstök átaksverkefni fyrir atvinnuleitendur svo og námsfólk fyrir sumarið 2011. Athygli vekur að í herferðinni eru landssvæðin tilgreind hvert fyrir sér nema hvað Norðurland vestra sem ekki er til í nýrri herferð.
Auglýst eru störf á Höfuðborgarsvæði, Reykjanesi, Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Suðurlandi. Þegar blaðamaður fór að skoða málið frekar kom í ljós að störf voru í boði á Norðurlandi vestra en auglýsingar þess efnis fóru undir Norðurland eystra. Spurning hvort 20:20 áætlunin sé nú þegar farin af stað hjá Vinnumálastofnun eða hvað? „Nei, þetta var engin árás á sjálfsmynd íbúa á Norðurlandi vestra heldur bara mannleg mistök,“ Segir Gissur Pétursson hjá Vinnumálastofnun. Feykir bauð Gissuri að koma leiðréttri auglýsingu á framfæri í Feyki en það boð var afþakkað.
Feykir bendir því atvinnuleitendum á Norðurlandi vestra á að skoða undir Norðurland eystra þegar þeir eru að leita í þessu störf.