Norðurlandsmót í boccia um næstu helgi
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
03.12.2013
kl. 13.28
Laugardaginn 7. desember næstkomandi verður haldið Norðurlandsmót í boccia í íþróttahúsinu á Sauðárkróki. Keppt verður í fjórum flokkum og koma um sjötíu keppendur frá Snerpu á Siglufirði, Völsungi á Húsavík, Akur og Eik á Akureyri og að sjálfsögðu frá Grósku í Skagafirði.
Keppni hefst klukkan eitt og stendur fram eftir degi og lýkur svo með lokahófi í Ljósheimum um kvöldið. Allir eru hvattir til að líta í íþróttahúsið og sjá fremstu bocciakeppendur Norðurlands reyna með sér í skemmtilegri íþrótt.