Norðurtak ehf með lægsta tilboð
Norðurtak ehf á Sauðárkróki átti lægsta boð í færslu á Þverárfjallsvegi (vegnr 744) á 400 m löngum kafla um Sauðárkrók. Einnig er um að ræða endurgerð á nyrsta hluta Aðalgötu og gerð gönguleiða. Tilboð Norðurtaks hljóðaði upp á 53.927.750 kr sem eru 97,1% af áætluðum verktakakostnaði en tilboð voru opnuð á þriðjudaginn.
Malbikun akbrautar skal lokið 1. október næstkomandi og verkinu í heild skal lokið 15. nóvember. G. Hjálmarsson hf á Akureyri bauð einnig í verkið og hljóðaði tilboð þeirra upp á 56.841.400 kr sem er 102,4 af áætluðum verktakakostnaði.