Notum endurskinsmerki

Nú þegar svartasta skammdegið er að skella á þykir rétt að minna á mikilvægi endurskinsmerkja fyrir gangandi vegfarendur í umferðinni. 

Á Lögregluvefnum eru foreldrar eru hvattir til að setja endurskinsmerki á fatnað barna sinna sem oftar en ekki eru dökkklædd á ferð. Þá er ekki síður mikilvægt að fullorðnir noti þennan sjálfsagða og einfalda öryggisbúnað sér einnig til verndar.

Fleiri fréttir