Ný heimasíða Húnaþings vestra

Tekin hefur verið í notkun ný heimasíða fyrir Húnaþing vestra og segir í tilkynningu frá sveitarfélaginu að það sé gert til að veita íbúum og gestum greiðan aðgang að upplýsingum er varða stjórnkerfi sveitarfélagsins. Á síðunni má m.a. finna upplýsingar um nefndir og ráð, stofnanir og starfsemi, fundargerðir fastanefnda og yfirlit um þá fjölbreyttu þjónustu sem sveitarfélagið veitir. Á heimasíðunni verður einnig að finna víðtækar upplýsingar fyrir íbúa og ferðamenn um þá víðtæku þjónustu sem er í boði í í Húnaþingi vestra, athyglisverða staði, viðburðadagatal o.fl.

Íbúar Húnaþings vestra eru sérstaklega hvattir til að fylgjast með málefnum sveitarfélagsins en í þeim tilgangi eru m.a. fundargerðir allra nefnda og sveitarstjórnar aðgengilegar á heimasíðunni. „Í nútíma samfélagi er gott aðgengi að upplýsingum afar mikilvægt m.a. til að efla skoðanaskipti og umræðu. Heimasíðunni er ætlað að kynna Húnaþing vestra sem víðast. Við viljum kynna sveitarfélagið sem ákjósanlegan áningastað fyrir ferðafólk og benda m.a. á fjölbreytta þjónustu, ósnortna náttúru og menningu sem hér er að finna og hægt er að njóta. Ekki síst viljum við koma því á framfæri hve gott er að búa í Húnaþing vestra og þess vegna sé eftirsóknarvert fyrir fjölskyldur og fyrirtæki að setjast hér að,“ segir Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í tilefni dagsins.

 

Fleiri fréttir