Ný stofnskrá Byggðasafns Skagfirðinga

Þann 1. desember næstkomandi tekur ný stofnskrá Byggðasafns Skagfirðinga gildi og er hún sú fjórða sem samin er síðan safnið var stofnað árið 1948. Á vef Svf. Skagafjarðar segir að vegna nýrra safnalaga sem tóku gildi 1. janúar sl. þurfti að endurnýja stofnskrána og var hún samþykkt af Safnaráði.

Byggðasafn Skagfirðinga er í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar og Akrahrepps en var í upphafi rekið af sýslunefnd og síðar héraðsnefnd. Safnið er alhliða minjasafn sem safnar, rannsakar og varðveitir muni og minjar úr Skagafirði, bæði áþreifanlega og óáþreifanlega.

Fleiri fréttir