Nýbúi út að austan
Feyki bárust myndir af svartþresti einum sem dvalið hefur á Melstað í Óslandshlíð síðan fyrripart desember. „Hann hefur flutt sig milli bæja, reyndar haldið sig mest hér um slóðir, trúlega vegna fæðuframboðs og kærleika heimilismanna til flækinga,“ sagði Garðar Páll Jónsson.
„Skógarreiturinn í Melstaðs-gilinu sunnan við bæinn hýsir marga fugla yfir vetrartímann og þar hafa þeir gott skjól. Annar svartþröstur hefur verið með honum aðeins minni og ljósari, trúlega er það kvenfugl, reyndar hefur honum tekist að forðast að komast á mynd þannig að það getur varla verið að það sé kvenfugl.
Kannski er von um aukningu i annars dauflegri dýraflóru hér út að austan sem byggist mest á hrafni og ref nú um stundir. Við settum upp myndavél sem annars er notuð til að vakta refi og hún náði þessum fínu myndum,“ sagði Garðar ennfremur.