Nýir starfsmenn við FNV

Þrír nýir starfsmenn hafa verið ráðnir við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Störfin sem um ræðir eru kennsla á starfsbraut, umsjónarmaður dreifnáms í Austur-Húnavatnssýslu og staða vistarstjóra á heimavist skólans.

Sex umsækjendur sóttu um starf kennara á starfsbraut FNV. Guðbjörg Ósk Valgarðsdóttir frá Sauðárkróki var ráðin í starfið.

Níu umsækjendur sóttu um stöðu umsjónarmanns dreifnáms í Austur-Húnavatnssýslu. Um er að ræða nýtt starf við skólann með tilkomu dreifnáms sem staðsett verður á Blönduósi. Til starfsins var ráðin Ásdís Ýr Arnardóttir frá Hæli.

Þá sóttu sex umsækjendur um stöðu húsvarðar á heimavist skólans. Gróa G. Haraldsdóttir frá Sauðárkróki var ráðin, en hún tekur við af Guðmundi Tómassyni sem lætur af störfum fyrir aldurs sakir.

Fleiri fréttir