Nýr formaður kjörinn á ársþingi USVH

Héraðsþing USVH var haldið að Reykjum í Hrútafirði sl. fimmtudagskvöld. Mæting var góð því rúmlega þrjátíu fulltrúar mættu til þings sem haldið var í boði Umf. Dagsbrúnar. Þingið var starfssamt og fjöldi ályktana samþykktur en veigamesta fundarefnið var heildarendurskoðun á lögum sambandsins og tókst að afgreiða fjölda lagabreytinga undir styrkri stjórn þingforseta Júlíusar Guðna Antonssonar. Sagt er frá þessu á vef UMFÍ.

Ungmennafélagið Harpa, sem áður var Í HSS, gekk til liðs við USVH á þinginu, en sú breytinga varð vegna breyttra marka sveitarfélaga. Fjárhagsstaða USVH er mjög góð. Þingfulltrúar fögnuðu sérstaklega samstarfi Umf. Kormáks og Sundfélagsins Húna að íþróttaæfingum á sambandssvæðinu sem hófst síðasta haust og hefur einfaldað skipulag íþróttastarfs auk þess að vera mun ódýrara en fyrra fyrirkomulag. Mjög góður starfsandi og samstaða ríkti á þinginu og allar ályktanir voru samþykktar samhljóða.

Sæmundur Runólfsson, framkvæmdastjóri UMFÍ, var gestur fundarins og sæmdi hann Önnu Maríu Elíasdóttur starfsmerki UMFÍ fyrir ötult starf innan sambandsins en hún hefur komið víða við innan ungmennafélagshreyfingarinnar mörg undanfarin ár.

Guðmundur Haukur Sigurðsson lét af formennsku eftir sex ár í formannsstólnum. Þakkaði þingið honum störfin með lófataki og færði honum blómvönd og gjöf í þakklætisskyni. Nýr formaður var kjörinn Reimar Marteinsson, varformaður Halldór Sigfússon, gjaldkeri Elín Jóna Rósinberg og ritari Hörður Gylfason, fyrir í stjórn var Vigdís Gunnarsdóttir. Varamenn í stjórn voru kjörnir: Sigurbjörg Jóhannesdóttir, Sara Ólafsdóttir og Kristinn Víglundsson.

 

Fleiri fréttir