Nýr framkvæmdastjóri Selaseturs Íslands á Hvammstanga

Unnur Valborg Hilmarsdóttir hefur tekið við starfi framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á Hvammstanga. Unnur hefur 20 ára reynslu af rekstri og stjórnun, sem aðstoðarframkvæmdastjóri Hreyfingar, framkvæmdastjóri Dale Carnegie á Íslandi, stofnandi og eigandi Vendum stjórnendaþjálfunar sem er leiðandi fyrirtæki á sviði markþjálfunar á Íslandi.  Unnur hefur auk þessa komið að hinum ýmsu frumkvöðlaverkefnum. 

Unnur hefur BEd. próf frá KHÍ, Diploma í viðskipta- og rekstrarfræðum frá EHÍ auk þess að hafa hlotið víðtæka þjálfun í námskeiða- og fyrirlestrahaldi, lóðsun, þjálfun þjálfara og  sölu- og sölustýringu.  Unnur hefur lokið námi í stjórnendamarkþjálfun (e. Executive coaching) frá Coach University og Opna Háskólanum í Reykjavík og hefur ACC vottun frá ICF, International Coach Federation.

Selasetur Íslands var stofnað árið 2005 með það að markmiði að standa að eflingu náttúrutengdrar ferðaþjónustu í Húnaþingi vestra, vinna að eflingu selaskoðunar á svæðinu og standa fyrir fjölbreyttum rannsóknum, fræðslu og upplýsingamiðlun um seli við Ísland.

Við selasetur Ísland eru starfrækt tvö öflug rannsóknasvið. Annars vegar líffræðirannsóknasvið sem hefur það meginverkefni að rannsaka selastofninn við Ísland. Meðal annars vöktun á stofnstærðum útsels- og landsels við Ísland og ferðum annarra selastofna til Íslands og íslenskra stofna til nágrannalandanna. Fæðuöflun sela, ásamt áhrifum sela á fiskstofna við landið, þar á meðal áhrif á laxa við ósasvæði og á laxveiði. Sviðinu stýrir Sandra Magdalena Granquist, dýraatferlisfræðingur og doktorsnemi.  Hins vegar ferðamálarannsóknasvið. Markmið þess er að rannsaka náttúrutengda ferðaþjónustu á Íslandi í sem víðustum skilningi, með sjálfbæra þróun greinarinnar að leiðarljósi. Sviðinu er stýrt af Leah Burns doktor í ferðamálafræðum.

Selasetur Íslands rekur  safn sem hefur það að markmiði að miðla upplýsingum um lífshætti sela, líkamsbyggingu, kæpingu, fæðuöflun o.fl. Auk sögulegs yfirlits um hlunnindi, selveiðar og nýtingu sels á Íslandi. Á safninu er einnig upplýsingamiðstöð fyrir ferðamenn sem gegnir veigamiklu hlutverki í þjónustu við ferðamenn á Norðurlandi vestra. Undanfarin ár hefur fjöldi gesta í Selasetrinu aukist hratt. Á nýliðnu sumri komu yfir 17 þúsund manns í upplýsingamiðstöðina sem er nær tvöföldun á gestafjölda frá árinu áður og útlit er fyrir áframhaldandi fjölgun á næstu árum.

Fleiri fréttir