Nýr skíðaþjálfari til Tindastóls
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
31.10.2013
kl. 09.38
Björgvin Björgvinsson skíðakappi frá Dalvík hefur verið ráðinn þjálfari hjá skíðadeild Tindastóls og hefur þegar hafið störf. Á heimasíðu Tindastóls segir að vart þurfi að kynna Björgvin en það sé mikill fengur fyrir skíðadeild Tindastóls að fá svo reynslumikinn skíðamann til liðs við félagið.
Æfingar fyrir 11 ára og eldri verða á mánudögum og fimmtudögum kl 16 til 18 og verða þær á íþróttavellinum á Sauðárkróki til að byrja með. Öflug starfsemi var hjá skíðadeildinni sl. vetur og voru um fjörtíu krakkar sem æfðu reglulega.