Nýráðinn sviðsstjóri hjá Húnaþingi vestra
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
20.11.2013
kl. 11.31
Á fundi sveitarstjórnar Húnaþings vestra þann 28. október sl. var samþykkt að ráða Esther Hermannsdóttur í starf sviðsstjóra fjölskyldusviðs frá og með 1. nóvember 2013. Esther var valinn úr hópi sex umsækjenda sem er á heimasíðu sveitarfélagsins þakkað fyrir að sýna starfinu og sveitarfélaginu áhuga.
Esther útskrifaðist með kandídatspróf í lögfræði frá Háskóla Íslands 2001 og starfaði sem fulltrúi sýslumanns eftir útskrift, fyrst á Eskifirði og síðan hjá Sýslumanninum á Akranesi til haustsins 2010. Esther var fulltrúi á lögmannsstofu árin 2010-2011 og sjálfstætt starfandi lögmaður frá 2011-2013. . Netfang hennar er esther@hunathing.is.