Nýtt hjól í flotann

Um helgina bættist nýtt björgunartæki í flota Björgunarsveitarinnar Húna í Vestur-Húnavatnssýslu. Um er að ræða fjórhjól af gerðinni Suziki Kingquad 750, sem er samskonar hjól og sveitin eignaðist á síðasta ári.

Nýja hjólið fær kallmerkið Húni 6. Verður það strax tekið í notkun, en farið verður með það austur í Öskju þar sem sveitin verður á Hálendisvaktinni næstu vikuna.

Fleiri fréttir