Nýtt lag með Reyni Snæ og Ingunni Kristjáns - Myndband
Þau Reynir Snær Magnússon og Ingunn Kristjánsdóttir á Sauðárkróki hafa verið að skemmta Skagfirðingum og fleirum í sumar með söng og spileríi og gengið vel. Upp úr samvinnunni varð einnig til lag sem þau tóku upp í stúdíó Benmen og komið á YouTube.
-Lagið er eftir okkur bæði og svo er textinn eftir Ingunni. Tókum það upp hjá Fúsa í Stúdíó Benmen og spilaði hann líka inn trommur og bassa fyrir okkur. Myndbandið gerði svo Bergþór Pálmason eða "Beggó", segir Reynir Snær.
Eftir mikið „trúbb“ í sumar er komið að leiðarlokum í bili hjá þeim en Ingunn er á leið aftur út í skóla til USA og kemur líklegast ekkert fyrr en næsta sumar þar sem þráðurinn verður líklega tekinn upp aftur að sögn Reynis sem sjálfur er á leið í skóla. Hann hefur einnig slegið strengina í Hljómsveit Geirmundar Valtýssonar um skeið en tekur sér frí frá þeirri spilamennsku, í bili að minnsta kosti.
-Ég tók líklegast síðustu sveifluna með Geirmundi (í bili) um verslunarmannahelgina, þar sem að ég er að flytja suður og fara í nám í Tónlistarskóla FÍH núna í vetur.
Hér fyrir neðan má sjá lag þeirra Reynis og Ingunnar.
http://www.youtube.com/watch?v=SyKfcyjkaY8