Nýtt riðutilfelli í Skagafirði

Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Myndin tengist fréttinni ekki beint.

Riðuveiki hefur verið staðfest á bænum Álftagerði í nágrenni Varmahlíðar í Skagafirði. Síðast greindist riða á þessu svæði í september síðastliðinn á bænum Vallanesi. Matvælastofnun vinnur nú að öflun upplýsinga og undirbúningi aðgerða. Samkvæmt tilkynningu frá Matvælastofnun greindist riðan í sýnum úr tveimur kindum frá bænum þar sem nú eru um 370 fjár. Bóndinn hafði samband við héraðsdýralækni vegna kindanna sem sýndu einkenni riðuveiki. Kindurnar voru aflífaðar og sýni tekin og send á Tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum þar sem riðuveiki var staðfest í báðum sýnum.

Búið er í Húna- og Skagahólfi og í því hólfi hefur riðuveiki komið upp á átján búum á undanförnum 20 árum en á þessu búi greindist veikin síðast árið 2008 og þar áður 20 árum fyrr. Athygli vekur að riða kom einnig upp í Vallanesi 2007 ári áður en hún greindist í Álftagerði síðast. Riðuveiki hefur komið upp á mörgum bæjum í nágrenni Varmahlíðar í gegnum tíðina og má segja að um þekkt riðusvæði sé að ræða.

„Þetta er fyrsta tilfelli riðuveiki sem greinist á árinu en á síðasta ári greindist eitt tilfelli. Fram til ársins 2010 greindist riða á nokkrum bæjum á landinu á hverju ári en engin tilfelli hefðbundinnar riðu greindust á árunum 2011-2014. Riðan er því á undanhaldi en þetta sýnir að ekki má sofna á verðinum,“ segir í tilkynningunni.

Fjöldi bæja þar sem hefðbundin riðuveiki hefur verið staðfest á árunum 1987-2019. /MAST

Fjöldi bæja þar sem hefðbundin riðuveiki hefur verið staðfest á árunum 1987-2019. /MAST

Þar kemur einnig fram að á undanförnum árum hafi sýni verið tekin við slátrun úr u.þ.b. þrjú þúsund kindum á ári. Jafnframt hafa bændur verið hvattir til að senda hausa til Keldna af fé sem drepst eða er lógað heima vegna vanþrifa, slysa eða sjúkdóma, eða hafa samband við dýralækni um að taka sýni úr slíku fé. Aukin áhersla sé á að fá slík sýni þar sem það eykur líkur á að finna riðuna.

Héraðsdýralæknir vinnur nú að öflun faraldsfræðilegra upplýsinga og úttekt á búinu til að meta umfang aðgerða við förgun fjár, þrif og sótthreinsun. Því næst fer málið í hefðbundið ferli hvað varðar gerð samnings um niðurskurð.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir