Nýtt tónlistarmyndband með Steini Kárasyni

Steinn Kárason hefur gefið út myndskreytt tónlistarmyndband við lag sitt og texta „Tímamótaljóð“ en það er að finna á geislaplötunni „steinn úr djúpinu“ sem kom út í fyrra. Sauðkrækingum, Skagfirðingum, garðyrkjunemum og öðru góðu fólki bregður fyrir á ljósmyndum á þessu nýja myndbandi og segir Steinn að margar myndanna séu frá löngu liðnum tíma.

Þær elstu voru teknar fyrir meira en fimmtíu árum en þar má m.a. sjá börn og fullorðna skemmta sér við komu jólasveina á jólaball Kvenfélagsins í Bifröst. Búast má við að einhverjum hlýni um hjartarætur við að sjá fimmtíu ára gamla jólastemmingu.

http://www.youtube.com/watch?v=JlMp0i94OVw

 

Fleiri fréttir