Nýútskrifaðir Metabolicþjálfarar
Metabolic eru skemmtilegir og markvissir hópþrektímar fyrir alla þá sem vilja komast í frábært alhliða form; auka þrek og missa fitu. Í tímunum taka allir 100% á því, óháð formi.
Höfundur Metabolic er Helgi Jónas Guðfinnsson. Boðið hefur verið upp á Metabolic á tíu stöðum á Íslandi, en með nýútskrifuðum þjálfurum hafa Selfoss, Hafnarfjörður, Árbær, Höfn og Sauðárkrókur bæst í hópinn.
Friðrik Hreinn Hreinsson, Íþróttafræðingur B.Sc. og Guðrún Helga Tryggvadóttir, ÍAK Einkaþjálfari útskrifuðust sem Metabolicþjálfarar í gær, fimmtudaginn 4. júlí.