Ógnir vegna Héraðsvatna norðan Húseyjarkvíslar
Á síðasta fundi Byggðaráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar var lagt fram erindi frá landeigendum jarða sem liggja að Húseyjarkvísl og að Héraðsvötnum norðan Húseyjarkvíslar, þar sem farið er fram á að Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar hafi forgöngu um tafarlausar aðgerðir, vegna aðsteðjandi ógna sem gætu stafað af Héraðsvötnum.
Byggðarráð samþykkti að fela sveitarstjóra að afla frekari gagna og vera í sambandi við forsvarsmenn landeigenda, eins og fram kemur í fundargerð á vef sveitarfélagsins.