Óheimilt að spilla þekktum tófugrenjum
feykir.is
Vestur-Húnavatnssýsla
11.06.2013
kl. 09.39
Skúli Þórðarson sveitarstjóri Húnaþings vestra vekur athygli á því að með öllu er óheimilt að fara að þekktum tófugrenjum í sveitarfélaginu eða spilla þeim með einhverjum hætti.
Á tímabilinu frá 1. maí til og með 31. júlí ár hvert er einungis ráðnum veiðimönnum í umboði sveitarfélagsins heimilar veiðar á ref og tekur sú heimild einungis til þess svæðis sem þeir eru ráðnir til. Húnaþing.is segir frá þessu.
