Óhreinsað rækjuhrat í sjóinn
Á fundi Heilbrigðisnefndar Norðurlands vestra fyrr í vikunni var samþykkt að veita rækjuvinnslu Dögunar á Sauðárkróki formlega áminningu sbr. 26. gr. laga nr. 7/1998, þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að starfsleyfisskilyrðum þrátt fyrir skýr tilmæli um að þeim verði fylgt. Sigurjón Þórðarson framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Nv sagði að rækjuhrat hafi farið óhreinsað í sjóinn.
Nefndin telur fullt tilefni til að gera rækilega úttekt á fyrirtækinu þar sem m.a. verði farið yfir hvort að fleiri ákvæði starfsleyfis séu brotin og að rækjuvinnslunni verði gert að greiða kostnaðinn við aukið eftirlit á grundvelli gjaldskrár Heilbrigðiseftirlitsins.
Þröstur Friðfinnsson framkvæmdastjóri Dögunar vildi lítið tjá sig um málið að öðru leyti en því að það sé í vinnslu.
Sigurjón Þórðarson segir að nokkrir möguleikar séu fyrir hendi fyrir verksmiðjuna að losna við skelina með öðrum hætti en dæla henni í sjóinn. Í fyrsta lagi er hægt að fara með skelina til urðunar eða jarðgera hana og nota sem jarðvegsbæti, plægja ofan í flög. Þá væri hægt að setja upp litla mjölvinnslu í tengslum við rækjuvinnsluna. Skelin hefur farið til nokkuð margra ára á Siglufjörð og segir Sigurjón að fyrirtækið Primex hafi sóst eftir skelinni og greitt fyrir flutning.
Að sögn Sigurjóns eru áhrifin að dæla skelinni í sjóinn ekki góð þar sem þau hafa verið stíflaðar leiðslur einkum áður en lögnin var lögð út í Suðurgarðinn. Þá gætir óþrifa í fjöru og við útrás. Hefur Heilbrigðiseftirlitinu borist kvartanir vegna þessa.