Óli kokkur hættir á Hólum - Fær leyfi til veitingareksturs frá Hellulandi

Á dögunum var haldið kveðjuhóf á Hólum þar sem Óla Kokki, Ólafi Jónssyni, voru þökkuð góð störf en Óli hefur staðið s vaktina í eldhúsi Hólaskóla (Undir Byrðunni) og stjórnað veitingum fyrir gesti og gangandi Á síðasta vinnudegi Óla hittust starfsmenn Ferðaþjónustunnar á Hólum og skólans í kaffisamsæti sem haldið var Óla til heiðurs og þar sem honum var færður ofurlítill þakklætisvottur fyrir vel unnin störf.

Óli hefur fengið rekstrarleyfi til þess að starfrækja veitingastað, flokkur I - veisluþjónusta og veitingaverslun, að Hellulandi. Aðdáendur matseldar Óla þurfa því ekki að örvænta þar sem kappinn er greinilega hvergi nærri hættur.

Fleiri fréttir