Ólöf á Tannstaðabakka styrkir Velferðarsjóð Húnaþings vestra
Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka kom á fund fulltrúa í stjórn Velferðarsjóðs Húnaþings vestra í dag og færði sjóðnum að gjöf kr. 516.000 sem hún hefur safnað með sölu á bútasaumsteppum sem hún saumar og selur til styrktar góðgerðamálum.
Ólöf hefur unnið að þessu verkefni undanfarin ár og hefur hún farið vítt og breitt um Norðvesturland á þessu ári og selt gestum og gangandi, nú síðast á jólamarkaðnum í Félagsheimilinu Hvammstanga. Er þetta þriðja árið í röð sem Ólöf leggur Velferðarsjóðnum lið og hefur hún styrkt sjóðinn samtals um kr. 1.400.000.
Í byrjun þessa árs var Ólöf valin Norðvestlendingur ársins 2018, m.a. vegna þess hvernig hún heldur Parkinsonsjúkdómi í skefjum með því að sauma og selja bútasaumsteppi og gefa andvirði þeirra til góðgerðarmála í heimahéraði. Í frétt á vef Húnaþings vestra segir að stjórn Velferðarsjóðs sébæði hrærð og glöð yfir þessu göfuga framtaki Ólafar og þakklát fyrir þann fallega hug sem býr að baki.
Sjá frétt á Feyki.is
Ólöf Ólafsdóttir á Tannstaðabakka er Maður ársins 2018 á Norðurlandi vestra
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.
Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.
Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.