Ólst upp við að „þurfa” að hlusta á Queen / HELGA HINRIKS

Eurovision-aðdáandinn Helga Hinriksdóttir býr á Hvammstanga en ólst upp rétt fyrir utan bæinn, eða á Ytri Völlum. Helga er árgerð 1972 enda 80’s tímabilið hennar uppáhalds. Þó það séu rúmlega 20 hljóðfæri á heimilinu segist hún varla spila skammlaust á nokkurt þeirra.

Helstu tónlistarafrek: Koma Söngvarakeppni Húnaþings vestra af stað og skipuleggja hana í nokkur ár þar til Sæunn Sigvaldadóttir tók við. Ég hef líka skipulagt nokkra tónleika, þeir eftirminnilegustu voru klárlega Pink Floyd tribute tónleikar sem voru haldnir 2005 (söng þar líka eitt lag).

Hvaða tónlist fær þig til að sperra eyrun þessa dagana? Adele. Annars var ég að kaupa mjög áhugaverðan geisladisk, og þann fyrsta í mörg ár, en hann er með söngkonu sem heitir Jo Hamilton.

Hvers konar tónlist var hlustað á á þínu heimili? Ég ólst upp við að ”þurfa” að hlusta á Queen. Man líka eftir Vilhjálmi Vilhjálmssyni og Megasi.

Hver var fyrsta platan/diskurinn/kasettan/niðurhalið sem þú keyptir þér? Ég fékk fyrstu kasettuna þegar ég var 6 ára og hún var með Dr. Hook.

Hvaða græjur varstu þá með? Pínulítið kasettutæki sem for-eldrar mínir áttu. Ég eignaðist ekki sjálf tæki fyrr en ég fermdist.

Hvað syngur þú helst í sturtunni? Syng ekki í sturtu.

Wham! eða Duran? Wham! auðvitað!!

Þú heldur dúndurpartí í kvöld, hvað læturðu hljóma í græjunum til að koma öllum í stuð? Hmm... Eurovision kemur mér alltaf í stuð... verð líklega að velja mér gesti með það fyrir augum.

Þú vaknar í rólegheitum á sunnudagsmorgni, hvað viltu helst heyra? Pink Floyd eða David Bowie.

Þú átt þess kost að fara hvert sem er í heiminum og skella þér á tónleika. Hvert færirðu, hvaða tónleika og hvern tækirðu með þér? Annað hvort á Eurovision keppni eða á tónleika með Bon Jovi. Ég tæki kærastann með á Bon Jovi (ef hann vill fara með) en synina á Eurovision keppni.

Hvaða tónlistarmann hefur þig dreymt um að vera? Enginn. Gæti hugsað mér að vera MEÐ Jon Bon Jovi  ; )

Hver er að þínu mati besta plata sem gefin hefur verið út? Final Cut með Pink Floyd... reyndar flest allt með Pink Floyd og eldra efni eftir Bowie.

Fleiri fréttir