Opið hestaíþróttamót á Sauðárkróki

Opið punktamót verður haldið miðvikudaginn 7. maí nk. á félagssvæði Léttfeta á Sauðárkróki.

Keppt verður í eftirfarandi greinum:

Fimmgangur - f1
Fjórgangur - v1
Tölt - t1
Slaktaumatölt - t2

Á vef Eiðfaxa kemur fram að skráningar þurfi að vera búnar að berast fyrir miðnætti í kvöld, mánudaginn 5. maí, á netfangið itrottamot@gmail.com.

Skráningargjald er 2000 kr. og greitt á staðnum. Áætlað er að mótið hefjist kl. 18.

Fleiri fréttir