Opið hús á Varmalandi

Eins og undanfarin ár ætlar fjölskyldan á Varmalandi í Sæmundarhlíð að vera með opið hús föstudaginn fyrir Laufskálarétt 27. september frá kl. 13-17. Þar verða til sýnis og sölu folöld, tryppi og tamin hross og einnig verður kynning á vatnsgöngubretti.

Að sögn Sigurgeirs bónda eru allir velkomnir en í boði verður kaffi og kleinur. Upplýsingar um söluhross er hægt að nálgast á varmaland.com.

Fleiri fréttir