Opið hús hjá Verðanda endurnýtingarmiðstöð

Verðandi endurnýtingarmiðstöð á Hofsósi hafði nýverið opið hús þar sem áhugasamir gestir gátu litið við og séð hvernig þær Verðandakonur, Solveig Pétursdóttir og Þuríður Helga Jónasdóttir, hafa komið sér fyrir í litla húsinu Þangstöðum sem þær fengu afhent fyrir rétt rúmu ári síðan. Þar hafa þær útbúið aðstöðu til að taka á móti og endurbæta eða endurvinna hvers kyns hluti sem þjónað hafa hlutverki sínu hjá fyrri eigendum en gætu gengið í endurnýjun lífdaga í þeirra höndum. Einnig bjóða þær upp á aðstöðu og tæki fyrir þá sem vilja koma og dytta að gömlum munum eða skapa eitthvað nýtt. Verkfærasafn þeirra er smám saman að stækka en þær segjast taka með ánægju á móti smíða- og saumaáhöldum ef fólk þarf að rýma til í geymslunni.
Opnunartíma hjá Verðanda, auk nánari upplýsinga um hvernig starfseminni verður háttað, er hægt að nálgast á Facebooksíðunni Verðandi endurnýtingarmiðstöð og á Instagram.
Sjá einnig: Ætla að gefa gömlum hlutum framhaldslíf