Opið hús í Félagsheimili Rípurhrepps

Eins og auglýst er í Sjónhorninu í dag verður útsölumarkaður í Félagsheimili Rípurhrepps í Hegranesi alla helgina. Rekstraraðilar hússins ætla að nota tækifærið og bjóða fólk velkomið í Nesið á laugardaginn og verður þá um leið opið hús þar sem gestir geta skoðað húsið og litið á þær breytingar og endurbætur sem þar hafa verið gerðar að undanförnu.

Kaffi verður á könnunni og nýbakaðar kleinur með. Á morgun, föstudag, verður opið frá 17:00-22:00, á laugardaginn frá 11:00-18:00 og á sunnudaginn frá 13:00-17:00.

Fleiri fréttir