Opið íþróttamót á Sauðárkróki
Punktamót verður haldið miðvikudaginn 26. júní á félagssvæði Léttfeta. Keppt verður í eftirfarandi greinum; 5-gangi, 4 - gangi, tölti, slaktaumatölti, gæðingaskeiði, 100m skeiði, 150m skeiði og 250m skeiði.
Skráningar skulu berast fyrir miðnætti mánudaginn 24. júní á netfangið itrottamot@gmail.com
Skráningagjald er 2000 kr. á fyrstu skráningu og 1500 kr. á næstu skráningar hjá sama knapa. Skráningagjald borgað á staðnum.
Tímasetningar fyrir mótið verðar nánar auglýstar síðar, reiknað er með að mótið hefjist síðdegis á miðvikudag.
ATH Ekki verða riðin úrslit.
/- Hestaíþróttaráð Skagafjarðar & Skeiðfélagið Kjarval.