Opið og ókeypis hjá Ósmann

Á morgun, fimmtudaginn 1. maí, verður opinn dagur hjá Skotfélaginu Ósmann og er aðgangur ókeypis. Opið verður á vallarsvæði Ósmann á Reykjaströnd frá kl. 13.00-16.00.

Nýa félagsheimilið verður til sýnis, kynnt verður starfsemi félagsins, boðið upp á kaffi og fleira að hætti félagsins Einnig verður hægt að fá að skjóta af riffli, boga og haglabyssu undir leiðsögn reyndra leiðbeinenda.

Fleiri fréttir