Orkustjóri telur erfitt að útvega orku fyrir álver

Guðni A. Jóhannesson, orkumálastjóri, segir að erfitt verði að útvega næga orku til þess að álver við Skagaströnd verði hagkvæmt. Í samtali við Morgunútgáfuna í Ríkisútvarpinu sl. þriðjudag sagðist hann þó ekki vilja slá hugmyndir um 120 þúsund tonna álver á Hafurstöðum út af borðinu sem óraunhæfar.

„Öll þessi umræða er svolítið í liðnum tíma. Við erum með frjálsa samkeppni á orkumarkaði á Íslandi. Það þýðir það að sá sem er tilbúinn til að borga nógu há verð getur fengið orku,“ sagði Guðni.

Ennfremur segir hann að verið er að miða við þær aðstæður og forsendur sem hafa verið við fjármögnun, þá er erfitt að finna næga orku á þessu svæði á því verði sem þarf til að álver verði hagkvæmt. Guðni vill þó ekki ganga svo langt að segja hugmyndir um álver á Hafurstöðum óraunhæfar.

„Ég mun ekki dæma um það. Viðskiptahugmyndir eru bara viðskiptahugmyndir. Þær eru háðar því verði sem menn fá fyrir afurðirnar. Það er ekki hægt að dæma neitt óraunhæft á þessu stigi málsins. En orkuöflun af þessari stærðargráðu, 200 megavött, hún mun taka dálítinn tíma þó að það séu há verð í boði fyrir orkuna,“ sagði Guðni í Morgunútgáfunni.

Fleiri fréttir