Öruggur sigur Tindastóls fór langt með að gulltryggja sætið í 1. deild
Tindastóll nánast gulltryggði sæti sitt í 1. deild að ári með ansi öruggum sigri á liði Knattspyrnufélags Fjallabyggðar í dag. Gestirnir komust yfir í byrjun leiks en það var klassamunur á liðunum og Stólarnir unnu sanngjarnan 3-1 sigur þegar upp var staðið og eru sem stendur í 7. sæti í næst efstu deild.
Í lið Tindastóls vantaði þá Rodrigo Morin og Ingva Hrannar Ómarsson sem báðir voru í leikbanni. Sjö Króksarar voru í byrjunarliði Stólanna og fjórir erlendir leikmenn. Gestirnir voru aðgangsharðir í byrjun leiks en sóttu þá með svolítinn vind í bakið. Þórður Birgisson kom KF yfir en hann virtist ná að pota boltanum í hægra hornið hjá Furness eftir góða sendingu fyrir markið. Stólarnir náðu betri tökum á leiknum þegar á leið og á 31. mínútu gerði Atli Arnarson glæsilegt mark, hann fékk boltann inni á miðjum vallarhelmingi gestanna og komst í gott skotfæri og setti boltann upp í hægra hornið án þess að Björn Hákon Sveinsson kæmi vörnum við. Fimm mínútum síðar tók Atli hornspyrnu og varnarjaxlar Stólanna voru sterkir á fjærstöng og Björn Anton kom boltanum í markið eftir skalla frá Edda. Staðan orðin 2-1 og þannig var hún í hálfleik.
Gestirnir úr Fjallabyggð voru næstum búnir að jafna strax í byrjun síðari hálfleiks þegar varnarmenn Stólanna dottuðu eitt augnablik, en boltann settu gestirnir í stöngina og fyrir markið en heimamenn hreinsuðu frá. Eftir þetta náðu Tindastólsmenn yfirhöndinni og voru nær því að bæta við mörkum en KF að jafna metin. Atli Arnarson gerði síðan út um leikinn þegar hann var skyndilega á auðum sjó á 74. mínútu og setti boltann snyrtilega í markið. Örfáum mínútum síðar meiddist Atli hins vegar illa og óttuðust menn að um krossbandameiðsli væri að ræða, en Atli, sem hefur verið besti leikmaður Tindastóls í sumar, var umsvifalaust fluttur með sjúkrabíl á spítalann. Eftir þetta gerðist fátt markvert, annað en að spjaldaglaður dómari leiksins hélt áfram að veifa spjöldum, og öruggur sigur Tindastóls í höfn. Lokatölur 3-1.
Sem fyrr segir hafa Tindastólsmenn með sigrinum í dag nær örugglega tryggt sæti sitt í 1. deild að ári en Þróttur og KF berjast um sæti í deildinni en Völsungur er fallinn. Eftir nokkuð erfiða byrjun í sumar hefur Tindastóll spilað fínan fótbolta og liðsheildin verið góð. Besti maður liðsins í dag var Atli en Jordan Branco var einnig í hörku stuði. Annars skiluðu allir leikmenn hlutverki sínu vel. Stemningin á vellinum var í daufari kantinum en vanalega hefur verið hægt að treysta á að Siglfirðingar fjölmenni á Krókinn og hvetji sína menn – það er kannski af sem áður var?