Örvar farinn í sína síðustu veiðiferð fyrir FISK Seafood

Rúv.is segir frá því að landfestar frystitogarans Örvars SK-2 frá Sauðárkróki voru leystar í gær um leið og skipið hélt í sína síðustu veiðiferð fyrir FISK Seafood en Örvar hefur verið seldur til Rússlands.

Eins og áður hefur komið fram á Feykir.is var 30 manna áhöfn sagt upp í kjölfar sölunnar en ekki liggur fyrir hvort sjómennirnir verði endurráðnir. FISK Seafood hyggst draga úr bolfiskvinnslu úti á sjó og efla vinnslu í landi en þessi þróun á sér nú stað um allt land.

Í samtali við Rúv.is segir Jón Eðvald Friðriksson framkvæmdastjóri FISK Seafood: „Í fyrsta lagi má segja það að menn standa frammi fyrir því að grípa til hagræðingaraðgerða. Við fengum 700 milljóna króna aukareikning í formi auðlindaskatts á síðasta ári.“

Þá hafi aflaheimildir breyst mikið en grálúðuheimildir hafa minnkað um 1000 tonn á tæpum áratug og heimildir í úthafskarfa séu aðeins 11 prósent af því sem var fyrir 10 árum: „Og menn hafa bara trú á því að landvinnslan sé arðbærari og skili meiri árangri fyrir fyrirtækin og þjóðina", segir Jón.

Og þótt áherslubreytingar hafi í för með sér tímabundna fækkun starfa, fjölgi þeim þegar til lengri tíma er litið með frekari úrvinnslu og bættri nýtingu hráefnis.

Heimild: Rúv.is

Fleiri fréttir