Óskasteinn frá Íbishóli gerir það gott

Óskasteinn frá Íbishóli í Skagafirði er ný stjarna á stóðhestamarkaðinum. Alls kom 84 hryssur til hans síðasta sumar. Af þeim hefur verið staðfest fyl í 70 hryssum. Hugsanlega hefði hann geta sinnt örfáum hryssum í viðbót en hesturinn er greinilega orðinn einn vinsælasti stóðhestur landsins.

Ekki voru margir sem sáu þessar vinsældir fyrir þegar Óskasteinn kom fyrst fram sumarið 2011, en Óskasteinn þykir ekki fallegur stóðhestur. Hann fékk 7,54 fyrir byggingu þegar hann var fyrst sýndur vorið 2011, þá sex vetra. Alvörugefnir hrossaræktendur sýndu þessum hesti litla athygli til að byrja með þó það færi ekki fram hjá neinum að hesturinn er fljúgandi reiðhestur. Hann fékk 8,75 fyrir hæfileika á LM2011 á Vindheimamelum.

Árið eftir, um vorið, fékk Óskasteinn 9,10 fyrir hæfileika, 9,5 fyrir tölt, skeið og hægt tölt. 9,0 fyrir brokk og fegurð reið. Á LM2012 í Reykjavík sló Óskasteinn rækilega í gegn og fékk 9,12 fyrir hæfileika þar af 10 fyrir vilja og geðslag. Hann hækkaði byggingareinkunn sína upp í 7,74.

Árangur og framkoma Óskasteins á landsmótinu 2012 hefur gert hann að einum vinsælasta stóðhesti landsins. Fetar hann þar í fótspor afa síns, Óðs frá Brún og föður síns, Hugins frá Haga. Óður var ekki þekktur fyrir fallegt sköpulag, auk þess sem hann sýndi ýmislegt misjafnt sem reiðhestur. Óður var hins vegar mesti gæðingur landsins á sínum tíma og  því var horft fram hjá ýmsu sem aðrir hestar fengu ekki að komast upp með.

Óskasteinn minnir um margt á afa sinn Óð frá Brún en hefur það fram yfir hann, að enginn efast um geðprýði Óskasteins. Hann er jafnvígur gæðingur sem skeiðar af mikilli list án þess að það komi hið minnsta niður á frábæru tölti hestsins né fótaburði.

Frá þessu er sagt á vef Hestafrétta.

Fleiri fréttir