Óvissa hvað tekur við hjá HS
-Allt er óbreytt hjá okkur frá því fjárlög voru samþykkt og vitum við ekki annað en að við þurfum að skera niður um ca. 40 millj. kr., segir Hafsteinn Sæmundsson framkvæmdastóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauðárkróki aðspurður um málefni hennar eftir að fjárlög voru samþykkt á Alþingi
-Nú eru nokkrar nefndir að störfum á vegum velferðarráðuneytisins og er einni nefndinni ætlað að fjalla um öldrunarmál og skiptingu hjúkrunarrýma milli landssvæða. Okkar hlutur í hjúkrunarrýmum er mjög rýr og bind ég vonir við að við þessa vinnu nefndarinnar komi fram tillaga um að fjölga hér rýmum. Því mundi þá væntanlega fylgja aukið fjármagn, segir Hafsteinn.