Pallaball á Hvammstanga í mars
Þrír ungir menn á Hvammstanga standa fyrir svo kölluðu Pallaballi á Hvammstanga, helgina fyrir páska. Allur ágóðinn af dansleiknum rennur til kaupa á ómtæki fyrir Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hvammstanga.
Þremenningarnir hafa áður staðið fyrir dansleik þar sem ágóðinn rann til krabbameinsfélags í héraði og tókst þá að safna rúmum 180 þúsund krónum. Rætt verður við einn viðburðarstjórnendanna, Daniel Þór Gunnarsson, í næsta tölublaði Feykis sem kemur út á fimmtudaginn.