Pétur Rúnar Birgisson hlýtur afreksbikar
Eins og greint var frá hér á vefnum voru styrkri úr Menningarsjóði Kaupfélags Skagfirðinga afhentir í fyrradag. Við sama tækifæri var afhentur afreksbikar, sem er farandbikar til minningar um Stefán Guðmundsson fv., stjórnarformann KS og konu hans Hrafnhildi Stefánsdóttur. Er þetta í þriðja skipti sem bikarinn er afhentur og í þetta sinn var það hinn ungi og efnilegi körfuboltamaður Pétur Rúnar Birgisson sem hlaut bikarinn.
Þeir bræður Ómar Bragi og Stefán Vagn Stefánssynir afhentu Pétri Rúnari bikarinn, en það er höndum þeirra og Hjördísar systur þeirra að velja hver hlýtur bikarinn, sem gefinn er af þeim systkinum. Pétur Rúnar leikur með meistaraflokki Tindastóls og æfir auk þess með U18 landsliðinu, þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára.