Plata Ásgeirs Trausta gefin út um allan heim

Ásgeir hefur gert útgáfusamning við breska útgáfufyrirtækið One Little Indian. Fyrirtækið mun gefa út plötu hans, Dýrð í dauðaþögn, um allan heim innan tíðar. Fréttatíminn greinir frá þessu.

Ásgeir segir í samtali við Fréttatímann að fleiri plötufyrirtæki hafi sýnt sér áhuga en One Little Indian hafi frá upphafi verið mest spennandi. One Little Indian hefur gefið út plötur Sykurmolanna, Bjarkar og fyrstu plötur Sigur Rósar.

Samkvæmt grein Fréttatímans var Derek Birkett, framkvæmdastjóra One Little Indian, bent á Ásgeir Trausta síðasta haust og setti sig í samband við hann. Hann kom hingað til lands og hitti Ásgeir og hans fólk og snéri svo aftur á Iceland Airwaves, síðan þá hafa samningaviðræður staðið yfir.

„Honum leist rosa vel á tónlistina og spurði hvort við myndum ekki gera enska útgáfu til að ná til fleira fólks,“ segir Ásgeir. Plata Ásgeirs Trausta kemur út á íslensku á vegum One Little Indian á næstu dögum en sú útgáfa er fyrst um fremst hugsuð sem kynning í tengslum við tilnefningu Ásgeirs til Norrænu tónlistarverðlaunanna.

Verið að leggja lokahönd á enska útgáfu plötunnar þessa dagana. Það er tónlistarmaðurinn John Grant sem þýðir íslensku textana yfir á ensku. John Grant hefur verið búsettur hér á landi síðasta árið og unnið að annarri sólóplötu sinni en hann þykir glúrinn tungumálamaður og hefur náð góðu valdi á íslensku. Hann tók því þessari áskorun fagnandi, segir í Fréttatímanum. Ásgeir segir allar þýðingarnar vera klárar en nú er verið að ákveða hvað platan á að heita.

Tónleikahald vítt og breitt um heiminn

Ásgeir Trausti er bókaður á fjölda tónleika á árinu og er meira í bígerð en eins og fram hefur komið hefur Ásgeir gert samning við stóra erlenda umboðsskrifstofu, William Morris Entertainment sem hefur listamenn á borð við Björk og Lady Gaga á sínum snærum.

Í næstu viku spilar Ásgeir á norsku tónlistarhátíðinni By:Larm en þar eru Norrænu tónlistarverðlaunin einmitt afhent. Þá taka við tónleikar á Sónar-hátíðinni í Reykjavík. Því næst fer hann með alla hljómsveitina sína á ferðalag um Ameríku dagana 6. til 24. mars. Þar mun bandið til að mynda troða upp á South by Southwest tónlistarhátíðinni í Austin í Texas og á Canadian Music Week í Toronto.

Í apríl fer Ásgeir Trausti ásamt Júlíusi Róbertssyni gítarleikara frá Reykjum í Hrútafirði á tónleikaferðalag með Mads Langer um Danmörku. Þá er hann bókaður á G! festival í Færeyjum hinn 20. júlí, Pohoda festival í Slóvakíu í sama mánuði og fleiri tónlistarhátíðir verða staðfestar á næstunni.

Vinsældirnar komu öllum að óvörum

Dýrð í dauðaþögn seldist í um 22 þúsund eintökum fyrir síðustu jól. Hún varð þar með söluhæsta frumraun íslensks tónlistarmanns hér á landi. Vinsældirnar komu öllum að óvörum og líf þessa tvítuga tónlistarmanns hefur tekið óvænta beygju á síðustu mánuðum. Hann varð til að mynda nýverið að segja upp starfi sínu sem kennari í tónlistarskólanum á Hvammstanga.

Ásgeir segist eiga nóg af nýjum lögum en hins vegar er ekki von á nýrri plötu á þessu ári. „En mjög líklega á næsta ári,“ segir hann. Velgengni hans erlendis verður sumsé til þess að aðdáendur hér heima þurfa að bíða lengur eftir nýju efni en ella. Það verður víst ekki á allt kosið.

Viðtalið við Ásgeir Trausta í heild sinni má lesa hér.

 

Fleiri fréttir