Prófa nýja aðferð við selatalningar úr lofti
Sérfræðingar Selasetursins vinna nú að selatalningu úr lofti en slíkar talningar fóru síðast fram árið 2011 og var þá talið um land allt. Samkvæmt vef Selasetursins fékkst ekki fjárveiting til talninga af sömu stærðargráðu í ár, þ.e. um land allt, og því ekki hægt að byggja stofnstærðarmat á þeim gögnum sem safnast í ár. Talningin í ár mun þó gefa vísbendingar um fjölda landsela í helstu látrum landsins.
Sellátur úr lofti. Ljósm./Selasetur.is
„Markmið talningarinnar í ár er að prófa nýja aðferð sem í framtíðinni má ef til vil nota við stofnstærðaráætlanir. Fram til þessa hefur aðeins verið talið úr flugvél en í ár eru gerðar tilraunir með talningar með aðstoð ómannaðs loftfars og úr þyrlu til viðbótar við hefðbundnar talningar úr flugvél. Ætlunin er að bera saman þessar þrjár talningaraðferðir,“ segir á vefnum.
Þau svæði sem talið er á í ár eru: Akraós, Löngufjörur, Heggstaðanes, Hvammsfjörður, Vatnsnes, Strandir, Ísafjarðardjúp, Rauðisandur, Arnarfjörður og Suðurland. Verkefnisstjóri verkefnisins er Sandra Granquist, meðverkefnisstjóri er Erlingur Hauksson.