Ráðherra heimsækir Hóla

Sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson, var í heimsókn heim á Hólum í Hjaltadal sl. föstudag.  Í för með honum var aðstoðarmaður hans, Helga Sigurrós Valgeirsdóttir.

Eftir gott kaffispjall á veitingastaðnum Undir Byrðunni var haldið í bleikjukynbótastöð Háskólans á Hólum og síðan í Þráarhöll og Brúnastaði, þar sem ráðherra skoðaði aðstöðu hestafræðideildar, að því er fram kemur á heimasíðu Hóla, holar.is.

Fleiri fréttir