Ráslisti fyrir KS-deildina
KS-Deildin fer fram í kvöld, miðvikudaginn 26. mars, í Svaðastaðahöllinni á Sauðárkróki. Þrír efstu hestarnir frá töltinu í fyrra eru skráðir til leiks en það eru Randalín frá Efri-Rauðalæk, Trymbill frá Stóra-Ási og Freyðir frá Leysingjastöðum. „Greinilegt er að það stefnir í hörku keppni og verður spennandi að sjá hverjir ná topp fimm þetta árið,“ segir á vef Hestafrétta.
Mótið hefst klukkan 20:00. Aðgangseyrir er 1.500,- og gildir miðinn sem happdrættismiði, dregið verður um tvo folatolla í vinning undir stóðhestana Hausta frá Kagaðarhóli og Hraunar frá Vatnsleysu.
Ráslistinn er eftirfarandi:
Knapi Hestur Lið
1. Líney María Hjálmarsdóttir Sprunga frá Bringu Hrímnir
2. Vigdís Gunnarsdóttir Freyðir frá Leysingjastöðum laekjamot.is
3. Mette Mannseth Trymbill frá Stóra-Ási Draupnir/Þúfur
4. Sigvaldi Lárus Smyrill frá Hamraendum Weierholz
5. Þorbjörn Matthíasson Fróði frá Akureyri Björg/Fákasport
6. Elvar Einarsson Lárus frá Syðra-Skörðugili Top Reiter/ Syðra Skörðugil
7. Hörður Óli Sæmundarson Fífill frá Minni-Reykjum Hrímnir
8. Gísli Gíslason Ljóska frá Borgareyrum Draupnir/Þúfur
9. Viðar Bragason Björg frá Björgum Björg/Fákasport
10. Baldvin Ari Guðlaugsson Kvika frá Ósi Top Reiter/ Syðra Skörðugil
11. Jóhann Magnússon Oddviti frá Bessastöðum Weierholz
12. Bjarni Jónasson Randalín frá Efri-Rauðalæk Weierholz
13. Arnar Bjarki Sigurðarson Rún frá Reynistað Draupnir/Þúfur
14. Þórarinn Eymundsson Taktur frá Varmalæk Hrímnir
15. Sölvi Sigurðarson Ótti frá Ólafsfirði laekjamot.is
16. Tryggvi Björnsson Vág frá Höfðabakka Top Reiter/Syðra Skörðugil
17. Hlín Mainka Hlöðver frá Gufunesi Björg/Fákasport
18. Ísólfur Líndal Kristófer frá Hjaltastaðarhvammi laekjamot.is