„Raunfærnimat getur mögulega stytt nám þitt“

Á mánudaginn 14. apríl kl 17.00 ætlar starfsfólk Iðunnar að heimsækja Farskólann og halda kynningu á Raunfærnimati. „Raunfærnimati er ætlað að meta þá færni og þekkingu sem þú hefur öðlast í starfi og frítíma. Raunfærnimat getur mögulega stytt nám þitt. Að loknu raunfærnimati fara þátttakendur í skóla og ljúka því námi sem eftir stendur til að útskrifast,“ segir í meðfylgjandi auglýsingu.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá Farskólanum verður kynningin send út í fjarfundi og því verður hægt að fylgjast með kynningunni á Blönduósi í námsverinu að Þverbraut 1 og í námsverinu að Einbúastíg 2 á Skagaströnd.

Fleiri fréttir