Reiðhallarsýning Þyts á laugardaginn

Reiðhallarsýning Þyts, Hestar fyrir alla, verður laugardaginn 29. mars n.k. í Þytsheimum á Hvammstanga og hefst hún kl. 13:00. Sýningin er mjög fjölbreytt og þar má sjá hversu fjölhæfur íslenski hesturinn er og hversu stórum hópi fólks hann hæfir.

Knapar frá barnsaldri upp í fullorðinsár taka þátt í sýningunni, allt frá algerum byrjendum til mikilla reynslubolta í kennslu, þjálfun og keppni.

Nánar er fjallað um sýninguna á heimasíðu Þyts.

Fleiri fréttir